top of page
Search

Lúxus og lífsorka í höfuðborg Tenerife

  • Writer: Snaefridur Ingadottir
    Snaefridur Ingadottir
  • Apr 20
  • 1 min read

Í haust býður ferðaskrifstofan Verdi upp á ferð til Tenerife þar sem ég, Snæfríður Ingadóttir, mun sjá um fararstjórn ásamt Guðrúnu Gísladóttur. Ferðin liggur á mínar heimaslóðir á eyjunni en dvalið verður á fimm stjörnu hóteli í höfuðborg Tenerife, Santa Cruz.


Ferðin er hugsuð fyrir þá sem langar í sólina en vilja vera virkir og gera eitthvað meira en að liggja í sólbaði. Daglega hafa þátttakendur val um að taka þátt í dagskrá sem samanstendur af styrktaræfingum, teygjum og gönguferðum um Anagaskagann. Þá er iðandi borgarlífið örstutt frá hótelinu og áhugasamir geta einnig skellt sér í golf á Real Club de Golf de Tenerife, sem er einn elsti golfklúbbur Spánar, stofnaður árið 1932. Völlurinn er 18 holu, par 71.


Hópurinn mun einnig borða nokkrum sinnum saman í ferðinni á vel völdum stöðum á höfuðborgarsvæðinu (innifalið í verði) og áhugasamir geta einnig komið í síðdegisdrykk í húsið #húsiðokkarátenerife, sem við hjónin erum að gera upp á höfuðborgarsvæðinu. Matthías verður á svæðinu og honum leiðist ekki að tala um húsaframkvæmdir.


Ég hlakka til að sýna ykkur þetta horn á eyjunni sem við fjölskyldan höfum heillast svo af, horn sem allt of fáir Íslendingar upplifa á ferðalögum sínum til Tenerife. Tékkið endilega á þessum möguleika ef ykkur langar til þess að kynnast þessu svæði á eyjunni betur.


Nánari upplýsingar um ferðina má finna á heimasíðu VERDI.



 
 
 

Comments


bottom of page