Snaefridur Ingadottir
Vortilboð á Kanarí 60% afsláttur
Updated: Apr 24
Vegna tilfærslu á bókalager er handbókin um Gran Canaria, Komdu með til Kanarí, nú á 60% afslætti hjá höfundi. Tryggið ykkur eintak hér . Athugið: tilboðið gildir aðeins í vefverslunni lifiderferdalag.is

Fáir staðir í Evrópu státa af jafn hlýju og stöðugu veðurfari og Kanaríeyjar enda hefur eyjaklasinn verið vinsæll áfangastaður sóldýrkenda í áratugi, ekki síst eyjan Gran Canaria eða Kanarí eins og Íslendingar kalla hana.
Þar er að finna mikla fjölbreytni bæði í landslagi og afþreyingu, sem gerir eyjuna að afar spennandi áfangastað fyrir fólk á öllum aldri, allt árið um kring.
UM bókina
Í þessarri bók gefur fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir, sem ferðast árlega til Kanaríeyja með fjölskyldu sinni, lesendum hugmyndir að ýmsu áhugaverðu sem gaman er að skoða og upplifa á Gran Canaria.Bókin er í anda annarra handbóka Snæfríðar og er hugsuð fyrir ferðalanga sem vilja fá meira út úr ferðalaginu.
Í bókinni koma meðal annars við sögu: Kaktusar - Hellar - Gönguleiðir - Markaðir - Saltnámur -Romm - Skemmtigarðar - Pálmatré - Sandhólar - Kaffi - Sjávarlaugar - Baðstrendur - Fjallaþorp - Tapas - Sykurreyr - Kúrekar.
160 bls. Fjöldi litljósmynda prýða bókina sem og gróft kort af eyjunni.
HÉR má finna hugmyndalista yfir hluti sem gaman er að upplifa á eyjunni.