Fáir staðir í Evrópu státa af jafn hlýju og stöðugu veðurfari og Kanaríeyjar enda hefureyjaklasinn verið vinsæll áfangastaður sóldýrkenda í áratugi, ekki síst eyjan Gran Canaria. Á eyjunni er að finna mikla fjölbreytni bæði í landslagi og afþreyingu, sem gerir Gran Canaria að afar spennandi áfangastað fyrir fólk á öllum aldri allt árið um kring.
Í þessarri bók gefur fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir, sem ferðast árlega til Kanaríeyja með fjölskyldu sinni, lesendum hugmyndir að ýmsu áhugaverðu sem gaman er að skoða og upplifa á Gran Canaria.
Ef þú ert á leið til Gran Canaria og vilt fá meira út úr ferðalaginuþá mun þessi bók tvímælalaust veita þér innblástur!
Í bókinni koma meðal annars við sögu: Kaktusar - Hellar - Gönguleiðir - Markaðir - Saltnámur -Romm - Skemmtigarðar - Pálmatré - Sandhólar - Kaffi - Sjávarlaugar - Baðstrendur - Fjallaþorp - Tapas - Sykurreyr - Kúrekar.
160 bls.
Sendingarkostnaður innanlands er innifalinn í verði.
Sent með pósti frá Akureyri og reikna má með 7-10 dögum í að pósturinn skili sendingunni af sér.
Bókin fæst einnig í flestum verslunum Eymundsson.
Bókin er póstlögð frá Akureyri. Það tekur Póstinn yfirleitt 7-10 daga að koma bókunum á réttan stað innanlands, fer svolítið eftir staðsetningu og á hversu oft er borið út á viðkomandi stað.
3.500krPrice