RAFBÓK á PDF formi - pappírsútgáfan er uppseld
(Þegar gengið hefur verið frá pöntun færðu link þar sem bókinni er hlaðið niður. Linkurinn er aðeins virkur í 30 daga svo mikilvægt er að setja bókina á góðan stað þegar henni er hlaðið niður svo auðvelt sé að finna hana aftur)
Hefur þig dreymt um að búa á Spáni? Í þessari bók færðu upplýsingar sem hjálpa þér við að vega og meta drauminn betur og hvort þú eigir að taka fyrstu skrefin í átt að nýju lífi á Spáni. Í bókinni er farið yfir helstu þætti í undirbúningsferlinu og grunnupplýsingar gefnar varðandi hvað hafa ber í huga í tengslum við búsetu á Spáni.
- Kostir og gallar við búsetu á Spáni og Kanarísku eyjunum
- NIE, Residencia og Padrón
- Skattamál og sjúkratryggingar
- Örorkulífeyrir og ellilaun
- Atvinna, skólamál og barnagæsla
- Húsnæði, búslóð og bíll
- Daglegt líf
Bókin er 130 bls. og er sett upp á aðgengilegan og auðskiljanlegan hátt.
Auk hreinna upplýsinga er í bókinni að finna reynslusögur frá Íslendingum sem flutt hafa til meginlands Spánar og kanarísku eyjanna.
Snæfríður Ingadóttir hefur starfað sem blaðamaður í meira en 20 ár. Hún hefur skrifað ferðahandbækur um Tenerife og Gran Canaria, sem og handbækur um Ísland fyrir erlenda ferðamenn. Snæfríður hefur sérstakan áhuga á Spáni, hefur ferðast mikið til Kanaríeyja og bjó um tíma á spænsku eyjunni Tenerife þar sem hún og eignmaður hennar eiga gamalt hús sem þau eru að gera upp. Hugmyndin að bókinni kviknaði þegar hún þurfti sjálf að ganga í gegnum það ferli að sækja um spænska kennitölu, skrá börn sín í spænskan skóla og huga að skattamálum.
Spánn - Nýtt líf í nýju landi
Eftir að gengið hefur verið frá kaupunum færðu staðfestingarpóst með link til að hlaða bókinni niður. Þessi linkur er virkur í 30 daga frá kaupunum. Athugið að bókin er EKKI ætluð til áframsendingar, en kaupandinn getur hins vegar lesið hana eins oft og hann vill eftir að henni hefur verið hlaðið niður.